Mér heyrist fólk vera orðið eitthvað stressað yfir plani komandi helgar. Ég veit að það er bara mánudagur...eða reyndar þriðjudagur en samkvæmt veðurspánni á að vera gott veður á Snæfellsnesi sem og reyndar á suðurlandi. Ég sökkti mér í ferðabækurnar og netið og er sko orðin verulega spennt að fara á Snæfellsnesið. Ég fann svo geðveikt mikið að stöðum sem mig langar til að sjá en ég geri mér grein fyrir því að ég næ ekki að sjá nærri því allt í þessari ferð og kannksi hafið þið séð þetta allt áður. En ég tók að mér það bessaleyfi að gera drög að útileguplani fyrir helgina. Ég veit að þetta er svolítið þétt plan og það eru kannski ekki allir til í það en þetta er allaveg tilllaga og planinu má að sjálfsögðu breyta. En allavega þá er planið svona...
Föstudagur
16:00-18:00 Brottför úr bænum. Keyrt beint á tjaldstæðið á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Ég á eftir að athuga tjaldstæðin betur en mér líst vel á Langaholt eða
Brekkubæ. (Þið getið prufað að googla þetta)
19:00-20:00 Borða
22:00- ???? Ef það verður fallegt veður er örugglega gaman að taka létta kvöldgöngu um
svæðið fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Laugardagur
09:00-10:00 Allir að vakna
10:30-14:30 Bíltúr/göngutúr um svæðið í kring (Sjá nánar hér að neðan) Held að það séu
einhverjir restaurantar þarna, spurning hvort það sé áhugi fyrir því eða að taka
með nesti??
15:00 Breiðavík (Rauðfeldargjá)
16:30 Sund á Lýsuhóli
18:30 Byrja að kynda grillið
19:30-21:00 Borða steikina
21:00-???? Taumlaus gleði fram eftir nóttu
Sunnudagur
09:00-12:00 Vakna í rólegheitum og pakka saman
12:30 Brottför
13:00 Búðir (sjá nánar að neðan)
14:00 Væri gaman að keyra yfir Fróðárheiði til Ólafsvíkur og kíkja jafnvel á
Gufuskála ef það er áhugi fyrir því. Taka síðan rúntinn meðfram
norðurströnd Snæfellsness og lalla síðan heim á leið.
Ég ætla sko ekki að vera einhver crazy bitch með skeiðklukku, setti þessar tímasetningar inn til að átta mig á því hvað þetta tekur allt langan tíma. En ef það á að gera allt hér að ofan þá verðum við auðvitað að reyna að halda okkur sem mest við planið svo allir verði í góðu skapi. Síðan getur vel verið að það sé annað mikið skemmtilegra að sjá eða gera þarna. Skoðið þetta endilega á netinu, alltaf skemmtilegra að vita aðeins hvað maður er að fara að gera. Komið endilega með hugmyndir ef þið eruð með eitthvað í huga.
Síðan þarf að fara að pæla í bíla og tjalda málum. Eru pör bara saman í tjaldi eða hvað? Ég geri þá ráð fyrir því að við Heiðdís séum par
Hér eru nánari upplýsingar um einhverja af þessum stöðum fengnar af veraldarvefnum
Bíltúr/ Göngutúr um svæðið
(Arnarstapi, Dritvík, Malarrif, Djúpalónssandur, Einarslón, Sölvahamar o.fl.)
Ég veit að það er kannski ekki hægt að fara á alla þessa staði en þeir eru samt allir á sama blettinum þannig að ég held að við verðum bara að sjá til þegar við erum komin.
Frá Dritvík og Djúpalónssandi
Meðal áhugaverðra staða á Snæfellsnesi sunnanverðu er Djúpalónssandur, en svo heitir bogamynduð klettavík með tveimur ferskvatnslónum, skammt fyrir vestan eyðibýlið Einarslón. Á sandi þessum er ýmsar furðusmíðar náttúrunar og ber þar hæst Gatklett og Draugahelli, þar sem fyrrum þótti reimt í meira lagi. Til er þjóðsaga frá þessum slóðum.
Djúpalónssandur - Dritvík. Leiðin á milli Djúpalónssands og Dritvíkur er vinsæl og auðveld. Hún tekur um 20 mín. aðra leið (tæplega 1 km) en rétt er að áætla lengri tíma. Hægt er að halda áfram eftir gamalli vermannagötu um Beruvíkurhraun og í Sandhóla. Sú ganga tekur um klukkustund frá Dritvík. Öll leiðin frá Djúpalónssandi um Dritvík í Sandhóla er um 4 km og finnst sumum fallegra að byrja gönguna í Sandhólum og enda á Djúpalónssandi. Áður fyrr bjuggu í Dritvík 200-600 manns hluta úr ári. Á Djúpalónssandi eru steintökin sem vermenn reyndu afl sitt á. Gaman er að ganga fram á Suðurbarðann en þar er völundarhús sem vermenn höfðu að leik.
Sölvahamar. Gamla þjóðleiðin liggur eftir Sölvahamri endilöngum, nálægt honum miðjum eru fornar rústir í umsjá Þjóðminjasafnsins og eru verndaðar. Ganga frá Arnarstapa yfir Sölvahamar tekur innan við klukkustund og veldur aldrei vonbrigðum.
Annað
Gönguleiðir í kringum Arnarstapa liggja á ýmsum stöðum, ein liggur t.d, eftir ströndinni og þeir sem taka þá ákvörðun að ganga hana sja hina stórbrotnu klettaströnd á milli Arnarstapa og Hellna. Önnur leið er nefnd Laugarbrekku gangan og á þeirra leið er hægt að sjá margt spennandi eins og t.d, dys Axlar Bjarnar og Bárðar laug og ef maður er mjög heppinn sér maður kannski dansandi álfa og huldufólk. Svo fyrir þá sem eru mjög ofvirkir er hægt að skokka/ ganga upp á Stapafell en hann er 526 m. á hæð en þar upp er heljarinnar útsýni yfir Breiðuvík og ef maður gengur í kringum Stapafellið getur maður sér Sönghelli en þar dvaldi Bárður Snæfellsás. Og síðast en ekki síst er hægt að fara úr á Sölvahamri og upp að Látri eða upp eftir Hnausahrauni og skoða hina einu sönnu Rauðfelldargjá. Og svo ef menn hafa virkilega gaman af því að ganga taka þeir bara með sér nesti og nýja skó og rölta bara allar leiðirnar.
Búðir
Frambúðir. Frá Búðum er gaman að ganga stuttan spöl að Frambúðum, þar sem andi fortíðar svífur yfir vötnum og vallgrónar rústir bíða eftir að segja sögu sína. Ganga frá Búðakirkju tekur u.þ.b. hálftíma.


Ég vonast eftir heitum umræðum á morgun 
Góða nótt